Archive for May, 2007

Michael Moore snýr aftur!

May 28, 2007

Loksins er von á nýrri mynd frá Michael Moore. Það eru liðin þrjú ár síðan meistaraverkið Fahrenheit 911 kom út. Í þetta skiptið tekur hann fyrir hið sjúka heilbrigðiskerfi í Ameríku.

En hvaða vitleysa er það að láta marga mánuði líða milli þess sem myndin er sýnd í Ameríku og Evrópu. Ætli maður verði ekki að setja upp sjóræningjahattinn og redda sér eintaki í sumar.

Bill Maher vikunnar

May 28, 2007

Þetta verður víst síðasta Bill Maher vikunnar, a.m.k. þangað til í haust.

Ætli maður finni ekki eitthvað í staðinn.

Undarlegasta samvinna rokksögunnar?

May 27, 2007

Tveir af helstu meisturum bandarískrar tónlistar á 20. öldinni eru án efa Brian Wilson og Bob Dylan. Þrátt fyrir að vera báðir afkvæmi 7. áratugarins þá er ekki hægt að segja margt sé líkt með tónlistarstíl þeirra.

Því var það dálítið skrýtið þegar þeir unnu saman að lagi árið 1990. Lagið heitir The spirit of rock & roll og syngja þeir saman um rokkstjörnur á borð við Chuck Berry og Elvis Presley.

Þetta lag hefur aldrei verið gefið opinberlega út og aðeins verið til á bootleg-diskum. Óvíst er hvort að lagið fái nokkurn tíma uppreisn æru enda ekki hægt að segja að listamennirnir séu upp á sitt besta í þessum upptökum. Þó virðist Brian Wilson vera í alveg feiknarstuði.

Ég mæli með að allir hlusti á þetta syngi síðan með mér:

The spirit (the spirit) the spirit (the spirit)
The spirit of rock n roll
The spirit (the spirit) the spirit (the spirit)
The spirit of rock n roll

Bill Maher síðustu viku

May 26, 2007

Ein af nýju reglum vikunnar varðar Rev. Jerry Falwell og er “Death isn’t always sad”.

Bag of Joys á föstudagskvöldi

May 25, 2007

Þessi lög eru að komast langt með að koma mér í þetta líka svakalega góða skap.

Sveitasnakk

Sappa oj

We like to do it

Ha 498

Í berjamó með Bag of Joys

Bill Maher og feminismi

May 25, 2007

Ég er að spá í að setja inn vikulega myndbönd með meistaranum Bill Maher.

Mér finnst þetta sérstaklega fyndið:

“I always hear women say: “Well, married men live longer” Yes, and indoor cats also live longer. It’s a furball with a broken spirit that can only look out on a world it can never enjoy. But they do technicly live longer.”

Paul McCartney

May 15, 2007

Það er svoldið undarlegt að aðalmaðurinn í einni mest lofuðu og vinsælustu hljómsveit tónlistarsögunnar sé jafnframt mjög vanmetinn tónlistarmaður. Af einhverjum ástæðum þá hefur Paul McCartney fengið einhvern hallærisstimpil á sig. Í hugum sumra flokkast hann með tónlistarmönnum eins og Paul Anka, Barry Manilow, Neil Sedaka og Engelbert Humperdinck. Þ.e.a.s sem algjör hallærisgaur.

Sannleikurinn er hins vegar sá að Paul McCartney á sér fáa jafningja í tónlistarheiminum. Þeir sem komast næst honum eru Brian Wilson og Burt Bacarach. McCartney er hins vegar fremri þeim því hann er ennþá á fullu að semja og gefa út nýja tónlist. Tvær síðustu plötur hans teljast með því besta sem hann hefur gert á sínum ferli.

Ein af útskýringum á því að McCartney er svona vanmetinn liggur í þeirri dýrkun sem hefur orðið á John Lennon. Um leið og Lennon var skotinn til bana þann 8. desember 1980 var hann kominn í dýrlingatölu hjá mörgum tónlistaráhugamönnum. Sum lög hans sem ekki höfðu verið talin merkileg áður voru skyndilega orðin meistaraverk og allt sem hann hafði snert breyttist í gull.

Á sama tíma fór McCartney að líða fyrir samanburðinn við hinn látna félaga sinn. Hann lét það hafa eftir sér að eftir að Lennon var skotinn hafi hann breyst í Martin Luther Lennon.

Til að hafa áhrif á þá sem líta niður á Paul McCartney og telja að hann hafi ekki verið aðalbítillinn þá ætla ég að birta hérna Topp 10 lista.

10. Paul McCartney samdi Yesterday og Eleanor Rigby. Lögin sem fleyttu Bítlunum inn í nýtt tímabil lagasmíða og lyftu popptónlist á hærri stall.

Yesterday

Eleanor Rigby

9. Hann var bara svo asskoti sætur. Sjáið bara.

paul.jpg

8. Hann átti hugmyndina á Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band. Samdi byrjunarlagið á plötunni og var sá sem sóttist harðast eftir því að platan yrði það meistaraverk sem hún er.

Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band

7. Eftir að Brian Epstein dó í ágúst 1967 var mjög góður möguleiki á því að Bítlarnir myndu hætta saman störfum. McCartney tók þá völdin í sveitinni og framlengdi líftímann um tvö ár og þrjár stórar plötur.

6. Þegar Lennon sökk dýpra í eiturlyfjanotkun á seinni hluta sjöunda áratugarins, sem hafði afgerandi áhrif á lagasmíðar hans, náði McCartney hámarki á sínum sköpunarkrafti og samdi meistaraverk eins og Hey Jude, Lady Madonna, Let it be og The Long and Winding Road.

Hey Jude

Lady Madonna

Let it be

The Long and Winding Road

5. Þrátt fyrir þá staðalímynd að John Lennon hafi verið rokkarinn og Paul McCartney sykurpopparinn þá samdi McCartney Helter Skelter sem er án vafa rokkaðasta bítlalagið.

Helter Skelter

4. Þrátt fyrir að vera orðinn 64 ára gamall þá getur hann ennþá samið lög sem mundu sæma sig vel á hvaða bítlaplötu sem er. Dæmi um það er þetta lag sem er á plötunni Chaos and Creation in the Backyard frá árinu 2005.

Jenny Wren

3. Eins og áður var sagt þá var hann bara svo sætur í gamla daga.

paul2.jpg

2. Náði þeim markverða árangri að stofna nýja hljómsveit eftir Bítlana sem lifði í þónokkur ár við gríðarlegar vinsældir. Gaf út margar plötur og fór á þónokkra hljómleikatúra. Þ.e. gleðisveitina Wings.

Wings – Jet

1. Hefur náð öllum þessum árangri. Náð að gefa út mikinn fjölda platna, haldið ófáa tónleika og náð gríðarlegum vinsældum þrátt fyrir að hafa dáið fyrir 41 ári síðan.

Ríkisstjórnin í járnum! Lifi byltingin!

May 11, 2007

valdaran.jpg

Samkvæmt forsíðu Blaðsins situr ríkisstjórn Íslands í járnum í hegningarhúsinu við Hverfisgötu. Talið er að stjórnarandstæðingar hafi smalað saman ráðherrum í gærkvöldi og framið með því valdarán.

Ekki er útséð um hvort kosið verði á morgun eða ný valdstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingar taki við völdum án kosninga.

Nánari fréttir af þessum atburðum síðar.

Að gera sig að fífli fyrir atkvæði

May 10, 2007

Þó að síðustu alþingiskosningar hafi ekki verið jafn spennandi og þær sem nú er að ganga í garð þá er dálítið sem ég sakna við þær. Fyrir fjórum árum síðan þá gengu frambjóðendur nokkuð langt í því að gera sig að fífli fyrir kjósendur. Það var gert með því að mæta í 70 mínútur til að drekka ógeðisdrykk og síðan í þátt Gísla Marteins til að syngja.

Valgerður Sverrisdóttir náði síðan nýjum hæðum í þessum efnum þegar hún endaði nær alla kosningafundi með línudansi.

linudans.jpg

Fyrir þessar kosningar hef ég ekki tekið eftir neinum fíflalátum hjá frambjóðendum, nema þá kannski mjög kjánalegum málflutningi sumra þeirra. Það er fyrr en í dag. Á plakati sem fylgir með Séð&Heyrt sjást þrír frambjóðendur Íslandshreyfingarinnar gera eitthvað sem kallast “Stuðmannahoppið”.

hopp.jpg

Ég er nokkuð viss um að þetta plakat reddi Íslandshreyfingunni úr öllum umræðum um það hvort þetta sé alvöru framboð og fylgið fer væntanlega stighækkandi til kosninga.

Gengið á vatni

May 8, 2007

Nokkrir af lærisveinum Jesús á Spáni hafa náð að gera eitt af aðalpartýtrikkum meistarans að mjög góðu sjónvarpsefni.