Archive for September, 2007
Bill Maher: Nýjar reglur vikunnar
September 30, 2007Stephen Fry, frægðin og Dan Brown
September 28, 2007Stephen Fry birti á blogsíðu sinni í gær áhugaverða og stórskemmtilega grein um frægðina. Hann nær að skilgreina fyrirbærið “frægð” á stórmerkilegan hátt, enda sjálfur ekki ókunnugur umfjöllunarefninu. Sérstaklega eru skemmtilegar lýsingar hans á því þegar fólk ákveður að eiga við hann samskipti út á götu, þ.e. til að fá eiginhandaráritun og þesslags.
Ég mæli með að fólk lesi þessa grein, þó hún reyni kannski á þolrif einhverra enda lengri en bloggfærslur almennt. Ég ætla að láta fljóta með hérna smá kafla úr greininni þar sem Fry fær smá útrás á Dan Brown.
Dan Whatsit and his preposterously awful Leonardo book are actually relevant to our theme. I usually last longer with any best-selling novel, however pathetic, than I did with his. But in his case I knew from the very first word that this was a writer of absolutely zero interest, insight, wit, understanding or ability. A blunderer of monumental incompetence. The first word, can you credit it, is ‘renowned’. ‘Renowned symbologist Henry Titfeather ….’ or something equally drivelling, that’s how this dreadful book opens. How do you begin to explain to someone that you just don’t start a fictional story by telling your readers that your character is ‘renowned’? You show it, you don’t tell it.
… (more…)
Að éta vitleysuna… [Orðið á götunni- Ómar R. - Blaðið]
September 26, 2007Það er alveg ótrúlegt hvað vitlausar fréttir geta ferðast hratt frá slúðursíðu á netinu til moggabloggs og síðan endað í dagblaði. Án þess að neinn af þeim sem áframflytur fréttina geri hina minnstu tilraun til að athuga hvort hún styðjist við raunveruleikann.
Dæmi um þetta er þessi frétt á Orðinu á götunni á Eyjan.is. Þar er látið að því liggja að auglýsingastofan Hvíta húsið hafi stælt erlenda auglýsingu þegar þeir gerðu auglýsingu fyrir Umferðarstofu. Sannleikurinn er hins vegar sá að þessi auglýsing er hluti af alþjóðlegu auglýsingaátaki og Hvíta húsið því í fullum réttum. Sjá hér.
Ómar Valdimarsson, upplýsingafulltrúi og moggabloggari, étur síðan upp þessa vitleysu frá Orðinu á bloggsíðunni sinni. Hann bætir í og segir beint út að Hvíta húsið hafi stolið þessari hugmynd af erlendum kollegum sínum. Þ.e. þeir hafi selt Umferðarstofu stolna vöru. [Ekki er hægt að setja inn hlekk á þessa færslu Ómars, því hún er horfin. Honum hefur greinilega þótt það þægilegra að láta þetta hverfa en að viðurkenna klaufaskap sinn.]
Blaðið birtir þessa frétt síðan í blaði dagsinsi, 26. september, og vísar á Ómar sem heimild. [Það að Blaðið vísi á bloggfærslu sem hefur verið eytt sannar að það getur verið snúið að nota prívat heimasíður sem heimildir fyrir fréttir.]
Það er kannski hægt að skilja það að Ómar áframflytji þessa frétt frá Orðinu, sem nota bene er eini aðilinn sem hefur leiðrétt sig í þessu máli, enda er hann atvinnublaðrari og maður tekur því sem hann skrifar með miklum fyrirvara.
En að dagblað birti frétt þar sem auglýsingastofa er borin þeim sökum að stela hugmyndum, sem mætti túlka sem grófan atvinnuróg, án þess að hafa fyrir því að hafa samband við tengda aðila er dæmi um hræðileg vinnubrögð. Það má eiginlega segja að dagblað sem beitir svona aðferðum við fréttavinnslu sé búið að eyðileggja fyrir sér allan trúverðugleika.
Bill Maher: Nýjar reglur vikunnar
September 23, 2007
Letiblaðamennska á dv.is
September 20, 2007Einhver mesta leti í blaðamennsku er að finna á dv.is. Þar er frétt um deilur á höfundarétti sjónvarpsþáttanna Næturvaktin.
Í fréttinni, sem skrifuð er af Guðmundi Magnússyni, segir:
Ragnar Bragason leikstjóri segist hafa fengið hugmyndina að hinum vinsæla sjónvarsþætti Næturvaktin í júní í fyrrasumar eftir að hafa óvænt lent í handalögmálum við starfsmann á bensínstöð Skeljungs við Suðurlandsbraut….
Ragnar minnist hvergi á Gest Val Svansson fyrrverandi bensínafgreiðslumann sem fullyrðir í viðtali við DV í dag að hann hafi upphaflega átt hugmyndina að sjónvarpsþættinum fyrir nokkrum árum en njóti ekki heiðursins fyrir það.
Guðmundur vitnar þarna í myndband sem má finna á netinu. Þ.e Meðan heimurinn sefur: Gerð Næturvaktarinnar. Þessi heimildamynd er því heimildin sem hann skrifar fréttina útfrá.
Ef Guðmundur hefði nennt að horfa á meira en fyrstu mínútuna í þessari mynd þá hefði hann komist að þeirri augljósu staðreynd að þarna er á ferðinni svokallað mockumentary, þ.e. skálduð heimildamynd.
Í þessari mynd koma leikararnir allir fram í hlutverki persónanna í Næturvaktinni og allt látið líta út fyrir að Næturvaktin sé raunverulegur heimildaþáttur um lífið á næturvakt á bensínstöð.
Lýsing Ragnars Bragasonar eins og vitnað er til hennar í fréttinni er því augljóslega skálduð. Enda maðurinn sem hann á að hafa lent í handalögmálum við, Georg Bjarnfreðarson vaktstjóri, uppspunnin persóna.
Fræðimaður kryfur “miðbæjarvandamálið”
September 20, 2007Grein dr. Gunnars Hjálmarssonar á baksíðu Fréttablaðsins í dag segir allt sem segja þarf um miðbæjarmóðursýkina.
Hér er lítið brot:
Hvað er að þessu liði? Slagandi um helgi eftir helgi, mígandi utan í veggi, slefandi fullt og ógeðslegt í örvæntingarfullri leit af einhverju til að dempa depurðina og einhverjum til að fjölga sér með. Getur þetta lið ekki hist í iðnaðarhverfum svo Egill Helgason og Þráinn Bertelson geti hlaupið á náttbuxunum eftir baguette kl. 8 á laugardagsmorgni án þess að stíga í ælu eða fá einn gúmoren hjá vitstola ofbeldishnakka?
Sigum bara hundunum á þá…
September 17, 2007Ég mæli með lestri á þessari grein í Grapevine um hið meinta “miðbæjarvandamál”.
Innlegg dr. Helga Gunnlaugssonar félagsfræðings, sem er helsti afbrotafræðingur landsins, er sérstaklega áhugavert.
“Sometimes, you could think you were reading about Baghdad when you read about the city centre in the Icelandic media…”
“There has always been a negative discussion of the city centre. I remember when I came home to Iceland in 1987 after studying abroad, there was the exact same discourse on the downtown area in the media. The Mayor then (Davíð Oddson) demanded that the police should deploy dogs to be better fit to handle the violence. This comes up very regularly, and every time it comes up, the atmosphere is that this is the worst it has ever been. It was always better, five, ten years ago, let alone 20 or 30 years ago.”
Bill Maher: Nýjar reglur vikunnar
September 15, 2007
Tilvitnun vikunnar
September 14, 2007Karl Pilkington um skáldskapargáfuna.
If you just talk, I’ve found, that your mouth just comes out with stuff.
Biblían reddar miðbæjarvandanum
September 13, 2007Ég held að Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hafi rétt fyrir sér. Biblían getur reddað þessum miðbæjarvanda.
Mikið af því fólki sem lætur illa í miðbænum um helgar eru óharðnaðir unglingar sem vilja ekki hlýða foreldrum sínum né landslögum.
Lausnin á þessu vandamáli er í þriðju Mósebók. Þar segir
Ef maður á þrjóskan son og ódælan, sem eigi vill hlýða föður sínum og móður, og hann hlýðnast þeim ekki að heldur, þótt þau hirti hann, þá skal faðir hans og móðir taka hann og fara með hann til öldunga borgar hans, að borgarhliðinu, þar sem hann á heima, og segja við öldunga borgar hans: ,,Þessi sonur okkar er þrjóskur og ódæll og vill ekki hlýða okkur, hann er svallari og drykkjurútur.“Skulu þá allir borgarmenn lemja hann grjóti til bana. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér, og allur Ísrael skal heyra það og skelfast.
Geir Jón væri eflaust til í verða einn af öldungum borgarinnar. Síðan væri hægt að skipuleggja skemmtilega fjöldskylduskemmtun á sunnudögum í kringum grýtinguna.
Góð lausn og allir eru ánægðir. Ja, nema kannski þeir sem verða grýttir en þeir geta hvort sem er kennt sjálfum sér um.
