Ég held að það væri best að þeir raunvísindamenn sem hafa gefið út hundruðir ef ekki þúsundir greina um hlýnun jarðar ættu að leggja þessa iðju sína á hilluna. Niðurstöður fræðilegra rannsókna þeirra veldur ekki gleði heldur aðeins áhyggjum hjá almenningi.
Í stað þeirra ættu stjórnmálafræðingar að sjá eingöngu um að fræða almenning um hlýnum jarðar. Menn eins og Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Björn Lomborg.
Hólmsteinnin mætti í síðasta Silfur Egils og ræddi þar um vin sinn Lomborg og hugmyndir þeirra um nytsemi hlýnunar jarðar og skelfingarmanninn Al Gore sem hlaut friðarverðlaun Nóbels í vikunni.
Ef einhver spyr hvort það skipti ekki máli að hvorki Hannes né Lomborg séu menntaðir í raunvísindum þá verð ég að segja að sumir punkar í þeirra orðræðu gera lítið úr slíkum spurningum. Hér eru nokkur dæmi:
- Hverjum finnst ekki betra að vera úti í heitu veðri en köldu? Fólk sækir til heitari landa og því er hlýnunin hið besta mál.
- Hannes segist í æsku sinni muna eftir mjög köldu veðri. Þetta sanni að það séu sífelldar hitasveiflur. Því eru áhyggjur af hlýnun núna algjörlega óþarfar.
- Andrúmsloftið er að hlýna á Mars. Þar sem aukin koltvísýringslosun almennings er ekki að valda hlýnun þar þá getur hún alls ekki verið að valda því hér.
Með heimatilbúnum rökum eins og þessum þá hafa þeir Hannes og Lomborg algjörlega fullvissað mig um það að þessi hlýnun jarðar er algjört kjaftæði. Ég er því farinn að starta bílnum áður en ég fer að sofa, enda svo gott að hafa hann hlýjan og þægilegan þegar ég fer í vinnuna í fyrramálið.
p.s. ég vona nú að Hannes taki líka fyrir þessa kjánalegu þróunarkenningu. Hann er algjörlega rétti maðurinn til að sanna það að ég er ekki kominn af apa.
Í allan dag er ég búinn að vera með línuna “Straight outta Compton, crazy motherfucker named Ice Cube. From the gang called Niggaz With Attitudes” á heilanum. Alveg yndislegt