Það er svolítið kaldhæðnislegt að þeir sem hafa verið harðastir við að stela tónlist og myndefni á netinu séu nú að safna liði gegn þeim sem hafa gert sjóræningjastarfsemina erfiðari. Boðað er að fólk eigi að senda Smáís tölvupóst og hóta því að sniðganga allar vörur sem tengjast samtökunum.
Þetta er eins og bankaræningi gefi út yfirlýsingu um að hann ætli að hætta í viðskiptum við þann banka sem bætir öryggisgæsluna hjá sér.
p.s. einnig er forvitnilegt að sjá framkvæmdastjóra Smáís nota tækifærið í viðtali a vísir.is og auglýsa þar nýja síðu sem hjálpar fólki að nálgast það efni sem hann sjálfur er að berjast gegn að sé í dreifingu. Mætti halda að hann sé haldinn masókisma.