Í Séð og heyrt sem kemur út í dag fjallar Eiríkur Jónsson um einkalíf Sigmars Guðmundssonar og Þóru Tómasdóttur. Ég ætla nú ekki að fjalla um efnisatriði þessarar greinar heldur þá tilætlunarsemi sem kemur fram í orðum blaðamannsins.
Hér er brot úr greininni:
Sigmar og Þóra vilja ekki ræða einkamál sín og telja þau ekki eiga erindi við almenning. Þrátt fyrir að þau séu inni í stofum landsmanna á hverju kvöldi – og stundum oft sama kvöldið.
Því vaknar sú spurning. Hvað þarf fólk að koma oft fram í sjónvarpi til að almenningur eigi rétt á því að vita allt um einkalíf þess?
