DV á ritstjórnartíma Jónasar Kristjánssonar og Mikaels Torfasonar átti oft frábæra spretti í lágkúrulegum fyrirsögnum. Mætti halda að þeir hafi eytt meiri tíma í þær en að tryggja sannleiksgildi fréttanna.
Nú er loksins kominn verðugur arftaki. Visir.is er í dag með alveg hrikalega smekklausa og lágkúrulega fyrirsögn.
Fornfrægt vændishús lokar leggöngunum
Það er varla hægt að vera hallærislegri.