Archive for January, 2009

Flassbökk hjá starfsfólki Stöðvar 2..

January 8, 2009

Hér er bútur úr viðtali við Ara Edwald á visir.is varðandi atburði gamlársdags.

„Það er ljóst að áfallið sem fólkið sem lenti í þessu varð fyrir er mun meira en ég hafði gert mér grein fyrir. Margir hafa verið að missa svefn og eru óttaslegnir,”…„Það þarf ekki annað en lykt af blysi eða einhver dólgsleg ummæli á bloggi til þess að koma þessum hughrifum af stað…

Þegar ég les þetta þá sé ég starfsfólkið fyrir mér eins og stríðstætta hermenn úr Víetnam. Þeir fá flassbakk við það að eitt að fara á þrettándabrennu eða við lestur á bloggi. En í stað þess að sjá brennandi Víetnama þá sjá þeir grímuklædda anarkista skera í sundur snúrur.  Ó, þvílík örlög.